Handbolti

Lærisveinar Patreks fengu á sig 43 mörk og Færeyjar gerðu jafntefli í Svartfjallalandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Patrekur þarf eitthvað að kíkja á varnarleikinn fyrir næsta leik.
Patrekur þarf eitthvað að kíkja á varnarleikinn fyrir næsta leik. vísir/getty
Nokkur óvænt úrslit urðu í undankeppni EM 2020 í handbolta en fyrstu umferðirnar í undankeppninni verða leiknar í vikunni.

Í Svartfjallalandi gerðu Færeyjar sér lítið fyrir og náðu í jafntefli 24-24 en jöfnunarmark Færeyinga kom þremur sekúndum fyrir leikslok. Færeyjar voru 15-10 yfir í hálfleik.

Tveir leikmenn KA í Olís-deildinni leika með Færeyjum. Allan Nordberg skoraði þrjú, þar af næst síðasta mark Færeyjar, og Áki Egilsnes gerði tvö mörk.

Einnig urðu óvænt úrslit í Belgíu er annað lið frá Balkanskaganum, Serbía, gerði jafntefli við Belgíu, 27-27, en Belgar eru ekki hátt skrifaðir á heimslistanum.

Patrekur Jóhannesson og lærisveinar hans fengu skell í æfingarleik gegn Noregi, 43-31, en þessi lið halda EM 2020 svo þau þurfa ekki að taka þátt í undankeppninni.

Þjóðverjar lentu í engum vandræðum á heimavelli en eftir að hafa verið tíu mörkum yfir í hálfleik, 19-9, unnu Þjóðverjar átján marka sigur, 37-21.

Í Danmörku unnu heimamenn sex marka sigur á Úkraínu, 30-24, eftir að staðan hafi verið jöfn í hálfleik 12-12. Danmörk leikur við Færeyjar á laugardaginn.

Öll úrslit kvöldsins:

Svartfjallaland - Færeyjar 24-24

Tékkland - Finnland 31-27

Pólland-Kósóvó 37-13

Serbía - Belgía 27-27

Noregur - Austurríki 43-31

Ungverjaland - Slóvakía 30-22

Þýskaland - Ísrael 37-21

Rússland - Ítalía 34-20

Portúgal - Rúmenía 21-13

Slóvenía - Lettland 27-21

Danmörk - Úkraína 30-24




Fleiri fréttir

Sjá meira


×