Lífið

Upplifðu eina kvöldstund í Hawkins á Halloween

Gunnþórunn Jónsdóttir skrifar
Martin Cabejsec yfirbarþjónn og Ivan Svanur Corvasce einn eigenda Miami fyrir Halloween.
Martin Cabejsec yfirbarþjónn og Ivan Svanur Corvasce einn eigenda Miami fyrir Halloween. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Halloween verður haldið með pompi og prakt í fyrsta sinn á Miami bar næsta laugardagskvöld. Staðnum verður breytt í 80’s paradís í anda litla smábæjarins úr þáttaröðinni vinsælu um Stranger Things sem flestir ættu að kannast við.

„Við ætlum að halda risastórt Stranger Things halloween partí á Miami. Okkar fannst það skemmtilega öðruvísi og passa sérstaklega vel inn í konsept staðarins sem er einmitt síðari hluti níunda áratugarins eða „mid-late eighties“. Það verður ekkert til sparað svo það er upplagt að leggja leið sína til okkar og upplifa eina kvöldstund í Hawkins,“ segir Ivan Svanur Corvasce, einn eigenda Miami á Hverfisgötu en allir eru velkomnir sem hafa aldur til.



Þrátt fyrir að yfirskrift kvöldsins sé Stranger Things þá verður búningaþema sem hægt er að tengja við árin 1980-1990 í kvikmyndum, tónlist og þess háttar. En að sjálfsögðu er allt leyfilegt.

„Barþjónar og aðrir þjónar verða að sjálfsögðu í búningi og það kemur bara í ljós hvernig búningar það verða, en það verður þema yfir þeim líka,“ segir Ivan Svanur. „Okkur finnst halloween skemmtileg hefð þar sem fullorðnir geta farið í búning líka. Öskudagurinn góði er fyrir börnin en halloween er fyrir alla. Svo er líka bara svo gaman að fara í búning og gera eitthvað öðruvísi einu sinni á ári.“

Ivan Svanur segir alla á Miami bar  spennta fyrir komandi kvöldi enda mikil vinna lögð í að gera staðinn eins líkan þáttunum vinsælu, Stranger Things.

„Við verðum með tvo kokteila á 1.500 kr. Á meðan birgðir endast. Það verður einn hvítur fyrir Hawkins og svo einn svartur fyrir „the upside down“. Sjáumst hress á Miami,“ segir Ivan Svanur kátur að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×