Lífið

Zac Efron furðar sig á sjóðandi stöðuvötnum á Íslandi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Vatnið var heitt, líkt og Efron fékk að reyna á eigin skinni.
Vatnið var heitt, líkt og Efron fékk að reyna á eigin skinni. Mynd(Samsett
Bandaríski leikarinn Zac Efron birti myndband frá nýlegri Íslandsferð sinni á Instagram-reikningi sínum í gær, þar sem hann furðar sig á sjóðandi hveravatni. Efron kom hingað til lands fyrr í mánuðinum en samkvæmt heimildum Vísis var hann staddur hér við tökur á sjónvarpsþáttum.

„Ísland, þar sem stöðuvötnin sjóða,“ skrifar Efron við myndbandið þar sem hann sést kanna hitastig sjóðandi uppsprettu í svörtum sandi ásamt félaga sínum.

 
 
 
View this post on Instagram
Iceland... where the lakes boil

A post shared by Zac Efron (@zacefron) on Oct 26, 2018 at 5:03pm PDT

Efron fagnaði 31 árs afmæli sínu á Íslandi, og birti mynd af sér þar sem hann þakkar fyrir afmæliskveðjurnar. Sú mynd virðist einmitt tekin með íslenskt landslag í bakgrunni.

Ljóst er að kappanum þykir mikið til Íslands koma en hann birti einnig mynd af sér á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann kemur einföldum skilaboðum á framfæri: „Ég elska Ísland“.

 

Efron er þekktastur fyrir leik sinn í High School Musical-kvikmyndunum. Hann hefur einnig leikið í myndum á borð við The Greatest Showman, Hairspray og 17 Again.


Tengdar fréttir

Zac Efron ögraði þyngdarlögmálinu

Það virðist vera fátt sem Strandvarða-stjarnan Zac Efron getur ekki gert. Að undanförnu hafa gengið um internetið myndir þar sem Efron sést vera í láréttri stöðu á danssúlu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×