Lærisveinar Lars með góðan sigur

Lars Lagerbäck.
Lars Lagerbäck. Vísir/Getty
Noregur lagði Slóveníu 1-0 í C-deild Þjóðadeildarinnar nú rétt áðan en leikurinn fór fram í Osló. Norðmenn eru nú jafnir Búlgaríu á toppi riðilsins með sex stig.

Norðmenn biðu lægri hlut gegn Búlgörum í síðustu umferð og voru með þrjú stig eftir tvo leiki fyrir leikinn í dag. Slóvenía var hins vegar á botninum án stiga eftir töp gegn Búlgaríu og Kýpur.

Lokatölur í dag urðu 1-0 og sigurmark Norðmanna kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks og var það Ole Selnæs, leikmaður St. Etienne, sem skoraði það.

Norðmenn mæta Búlgörum á þriðjudaginn í Osló en Búlgarir geta náð toppsætinu á nýjan leik í kvöld þegar þeir mæta Kýpur á heimavelli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira