Lífið

Zac Efron hélt upp á afmælið á Íslandi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Instagram/Zac Efron
Leikarinn og hjartaknúsarinn Zac Efron fagnaði 31 árs afmæli sínu í gær og ef marka má Instagram síðu stjörnunnar eyddi hann afmælinu á Íslandi.

Zac Efron skaust upp á stjörnuhimininn árið 2006 þegar hann fór með hlutverk Troy Bolton í Disney myndinni High School Musical.

Síðan þá hefur hann komið víða við í söngleikjum og hasarmyndum og ættu lesendur að þekkja hann úr myndinni Baywatch, Hairspray, Neighbours eða The Greatest Showman.

Ekki fylgir sögunni á samfélagsmiðlum Efron hvort hann sé enn hér á landi eða hversu lengi hann stoppaði.





 
 
 
View this post on Instagram
Feeling all the birthday love. So grateful for everything and everyone in my life. Thank you! Love you all!

A post shared by Zac Efron (@zacefron) on Oct 18, 2018 at 5:05pm PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×