Fótbolti

Rúrik og félagar unnu stórsigur í botnslag

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúrik í leik með Sandhausen í fyrra.
Rúrik í leik með Sandhausen í fyrra. vísir/getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason lék allan leikinn í liði Sandhausen þegar liðið fékk Ingolstadt í heimsókn í 10.umferð þýsku B-deildarinnar í fótbolta.

Liðin voru saman á botni deildarinnar með fimm stig þegar kom að leiknum.

Leikurinn var hins vegar alls ekkert jafn og fór að lokum svo að Rúrik og félagar unnu 4-0 sigur eftir að staðan í leikhléi var 1-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×