Íslenski boltinn

Gísli Eyjólfs: Eins og vanþakklátur krakki á jólunum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gísli Eyjólfsson gæti farið í atvinnumennsku í vetur.
Gísli Eyjólfsson gæti farið í atvinnumennsku í vetur. vísir/bára
Gísli Eyjólfsson, miðjumaður Breiðabliks, átti stórfínt sumar með Kópavogsliðinu í Pepsi-deildinni en Blikar höfnuðu í öðru sæti og komust í bikarúrslitaleikinn þar sem að liðið varð undir í vítaspyrnukeppni á móti Stjörnunni.

Gísli fór frábærlega af stað í sumar og var búinn að skora fimm mörk í deildinni fyrir byrjun júní en eftir það komu aðeins tvö mörk. Engu að síður skoraði miðjumaðurinn sjö mörk í 22 leikjum og gaf tvær stoðsendingar og kom þannig með beinum hætti að níu mörkum Breiðabliks.

Blikanum bauðst í sumar að fara sem lánsmaður til Lilleström sem er í mikilli fallbaráttu í norsku úrvalsdeildinni en Gísli ákvað frekar að taka slaginn í Pepsi-deildinni því hann vildi vinna eitthvað með uppeldisfélaginu.

„Það var mjög óheillandi því ég ætlaði mér að verða bikarmeistari og Íslandsmeistari, svo ég hafði ekki áhuga á að fara eitthvað að láni á þessum tímapunkti,“ segir Gísli í viðtali við Morgunblaðið.

„Í fyrra var alltaf talað um að maður þyrfti að taka annað gott tímabil til að sýna stöðugleika, og mér finnst ég hafa sýnt hann. Núna er þetta undir umboðsmönnum og Breiðabliki komið. Það hefur verið stefnan síðan maður var lítill að fara í atvinnumennsku og það er kannski raunhæfara nú en áður.“

Gísli fór til æfinga hjá Haugasundi í byrjun árs en það er eitt af bestu liðum norska boltans í dag. Haugasund þykir enn áhugasamt um að fá Gísla í sínar raðir en hann er í raun ekkert spenntur fyrir efstu deildinni í Noregi.

„Mér finnst það eiginlega ekki ... en þá er maður samt eins og vanþakklátur krakki á jólunum. Auðvitað vill maður fara út frá Íslandi og prófa þetta. Þá get ég bara komið til baka ef það gengur ekki nægilega vel. En ég er ekki að stressa mig,“ segir Gísli Eyjólfsson við Morgunblaðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×