Innlent

Samþykktu að auka aksturstíðni Strætó á stofnleiðum

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Í tillögunni felst að stefnt verði að því að leiðir 1, 3 og 6 aki á 7,5 mínútna aksturstíðni frá og með ársbyrjun 2020.
Í tillögunni felst að stefnt verði að því að leiðir 1, 3 og 6 aki á 7,5 mínútna aksturstíðni frá og með ársbyrjun 2020. Fréttablaðið/Anton Brink
Á borgarstjórnarfundi í kvöld var tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna um 7,5 mínútna tíðni Strætó á stofnleiðum samþykkt með 22 atkvæðum. Í tillögunni felst að stefnt verði að því að leiðir 1, 3 og 6 aki á 7,5 mínútna aksturstíðni frá og með ársbyrjun 2020.

Málsmeðferðartillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um að vísa tillögunni til Skipulags-og samgönguráðs til nánari útfærslu var felld.

Borgarstjórn beinir því til stjórnar Strætó að móta útfærslu á því að auka aksturstíðni á stofnleiðum strætó. Borgarstjórn óskar eftir upplýsingum um farþegafjölda á hverri leið, núverandi kostnað við hverja leið og mati á því hve mikið það myndi kosta að auka tíðnina á hverri leið upp í 7,5 mínútur. Borgarstjórn fer fram á að þeirri vinnu verði lokið fyrir 1. janúar 2019. 

Í greinargerð með tillögunni segir að aukin tíðni stofnleiða strætó á háannatíma sé hagkvæm leið til að auka þjónustu á þeim leiðum þar sem eftirspurnin er mest.

Tillagan krefst samkomulags við önnur sveitarfélög sem taka þátt í rekstri Strætó bs. Hún krefst jafnframt fjárútláta af hálfu sveitarfélaganna sem eiga í hlut og kallar því á leiðakerfisbreytingar.

Uppfært kl. 23:11 með bókun Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðisflokkurinn gerði bókun við tillöguna þar sem fram kemur að fulltrúar Sjálfstæðisflokks fagni áformum um aukna aksturstíðni á stofnleiðum en vilja að tryggt verði að verkefnið fari ekki fram úr kostnaðaráætlun.

„Kannanir meðal notenda almenningssamgangna hafa leitt í ljós að aukin tíðni og styttri ferðatími séu nauðsynlegir liðir í því að bæta þjónustuna og fjölga þeim sem nýta almenningssamgöngur. Mikilvægt er að fá nákvæma kostnaðargreiningu á verkefninu og tryggja verður að verkefnið fari ekki fram úr áætlunum. Áformum um bætta þjónustu við notendur í Grafarvogi og Breiðholti er fagnað, en við söknum þess þó að þjónusta sé bætt við fleiri hverfi í efri byggðum. Við teljum málið brýnt og þætti rétt að setja aukinn þrýsting svo útfærslan geti komið til framkvæmda eigi síðar en 1. janúar 2019.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×