Leita til heilsufyrirtækis vegna áhyggja starfsfólks KSÍ af álagi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. október 2018 15:00 Strákarnir okkar saman út við hornfána á Stade de France að loknu 5-2 tapinu gegn Frökkum á EM 2016. Álag á starfsfólk KSÍ hefur aukist í takt við tíðari þátttöku á stórmótum. Vísir/Vilhelm
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands ætlar að leita til heilsufyrirtækisins Auðnast til að bregðast við áhyggjum starfsfólks sambandsins af miklu vinnuálagi í starfi. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar frá því þriðjudaginn 25. september. Undir liðnum önnur mál var fjallað um bréf sem barst stjórn frá starfsmönnum sambandsins þann 31. ágúst. Í bréfinu lýsir starfsfólk áhyggjum sínum. „Stjórn KSÍ og framkvæmdastjóri taka málið alvarlega og munu bregðast við m.a. í samráði við heilsufyrirtækið Auðnast,“ segir í fundargerðinni. Mikið hefur mætt á starfsfólki KSÍ undanfarin ár og þar á meðal framkvæmdastjóranum Klöru Bjartmarz.vísir/egill Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir bréfið hafa borist frá starfsmönnum sambandsins, ekki einstaka starfsfólki. Um tuttugu manns vinna á skrifstofu KSÍ og hefur fjöldinn verið svipaður undanfarin ár. Þrjú ár í röð hafa A-landslið karla og kvenna komist í lokakeppnir stórmóta. EM 2016 í Frakklandi og HM 2018 í Rússlandi hjá körlunum og EM 2017 í Hollandi hjá konunum. Samkvæmt heimildum Vísir er það ekki síst vegna þessara móta sem álag starfsfólks hefur aukist til muna. Margir gangi í hin ýmsu störf sem fylgi slíkum verkefnum.Starfsfólk KSÍ fékk greiddan aukamánuð vegna starfa í kringum EM í Frakklandi árið 2016. KSÍ greiðir almennt ekki yfirvinnu en sökum vinnuálags í tengslum við mótið var samþykkt að greiða starfsmönnum sambandsins aukamánuð. Athygli vakti að þáverandi formaður, Geir Þorsteinsson, fékk tvo mánuði greidda í bónus á meðan annað starfsfólk fékk einn.
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Sjá meira