Íslenski boltinn

Ryder tekur við Þór

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ryder er farinn til Akureyrar
Ryder er farinn til Akureyrar mynd/þór
Gregg Ryder er nýr þjálfari Þórs í Inkasso deild karla í fótbolta. Hann tekur við liðinu af Lárusi Orra Sigurðssyni.

Lárus Orri hefur stýrt Þór síðustu tvö tímabil og undir hans stjórn varð Þór í 3. sæti Inkasso deildarinnar í sumar. Þórsarar áttu lengi vel möguleika á að fara upp í efstu deild en enduðu fimm stigum á eftir ÍA og HK.

Bretinn Ryder þjálfaði síðast Þrótt í Reykjavík en hann hætti störfum þar í apríl, rétt áður en nýafstaðið tímabil hófst. Faglegur ágreiningur var sagður ástæða þess að þar skildu leiðir.

Tilkynning Þórs:

Knattspyrnudeild Þórs réð í dag Gregg Ryder sem þjálfara meistaraflokks karla og tekur hann við liðinu af Lárusi Orra Sigurðssyni.

Gregg Ryder sem er einungis þrítugur að aldri hefur mikla reynslu af þjálfun en hann þjálfaði lið reykjavíkur Þróttara frá árinu 2013 en hann lét þar af störfum í vor. Þar áður hafði hann verið aðstoðarþjálfari Hermanns Hreiðarssonar með meistaraflokk ÍBV en Ryder hafði einnig þjálfað 2. flokk ÍBV sem og fleiri yngri flokka félagsins. Gregg Ryder lærði þjálfun og viðskiptafræði í Bandaríkjunum. Knattspyrnudeild gerði tveggja ára samning við Gregg.

Bjóðum Gregg velkominn til Þórs í von um að á Akureyri og í Þorpinu bíði hans góðir tímar á komandi árum.

Það var Óðinn Svan Óðinsson formaður knattspyrnudeildar Þórs sem undirritaði samninginn fyrir hönd Þórs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×