Fótbolti

Svona var blaðamannafundur Hamrén og Gylfa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Íslenska landsliðið í fótbolta mætir heimsmeistaraliði Frakka í vináttulandsleik í Frakklandi á morgun. Landsliðsþjálfarinn Erik Hamrén hélt blaðamannafund fyrir leikinn í dag ásamt Gylfa Þór Sigurðssyni og var Vísir með beina útsendingu og textalýsingu frá fundinum.

Hamrén fékk martraðarbyrjun með íslenska landsliðið, tvö töp með markatöluna 0-9 í fyrstu leikjunum í Þjóðadeildinni. Nú fær hann hins vegar vináttulandsleik þar sem hann getur prófað nýja leikmenn, leikkerfi eða hvað það sem hann vill fá að sjá frá liðinu án þess að neitt sé undir.

Andstæðingurinn er hins vegar ekki auðveldur, heimsmeistarar Frakklands. Ísland spilar svo leik í Þjóðadeildinni við Sviss á mánudag.

Upptöku af fundinum sem og beina textalýsingu blaðamanns má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×