Lífið

Ingileif og María Rut selja fallega íbúð við Starhaga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ingileif og Maríe gengu í það heilaga í sumar.
Ingileif og Maríe gengu í það heilaga í sumar.
Hjónin Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir hafa sett íbúð sína við Starhaga í Vesturbæ á sölu en ásett verð er 44,9 milljónir króna.

Ingileif og María Rut gengu í það heilaga í sumar og var brúðkaupið haldið á Flateyri.

Um er að ræða mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð með útgengt á 28 fermetra verönd til suðurs.

Húsið var byggt árið 1970 og er íbúðin sjálf um sjötíu fermetrar að stærð. Fasteignamat hennar er rúmlega fjörutíu milljónir.

Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð árið 2011 og 2012 en hér að neðan má sjá myndir af eigninni.

Virkilega fallegt hús og ekki skemmir veröndin.
Eldhúsið og stofan er eitt stórt og fallegt rými.
Hjónaherbergið bjart og fallegt.
Alls eru tvö svefnherbergi í íbúðinni og hér er barnaherbergiið.
Eldhúsið var tekið í gegn á árunum 2011-12.
Borðstofan og sjónvarpsholið er eitt rými.
Smekklegt baðherbergi.
Veröndin er til suðurs og er hún stórglæsileg.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×