Innlent

Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur á Kringlumýrarbraut

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Jeppi og fólksbíll skullu saman á gatnamótunum, rétt við umferðarljósin eins og sést á myndinni.
Jeppi og fólksbíll skullu saman á gatnamótunum, rétt við umferðarljósin eins og sést á myndinni. Vísir/Jóhann k. Jóhannsson
Harður árekstur varð á gatnamótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar á tólfta tímanum í dag er jeppi og fólksbíll skullu saman. Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl, að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Varðstjóra var ekki kunnugt um umferðartafir vegna slyssins. Ekki fengust upplýsingar um hversu margir voru í bílunum tveimur.

Sjúkrabíll var sendur á staðinn þegar tilkynning um slysið barst. Þá var lögregla einnig mætt á vettvang á tólfta tímanum. Draga þurfti að minnsta kosti annan bílinn í burtu.

Jeppinn var dreginn í burtu nú á tólfta tímanum.Vísir/Tinni



Fleiri fréttir

Sjá meira


×