Matur

Svona gerir Eva Laufey kjúkling Milanese

Stefán Árni Pálsson skrifar
Uppáhalds kjúklingaréttur Evu.
Uppáhalds kjúklingaréttur Evu.

Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti. 

Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Hér að neðan má sjá uppskrift úr þætti gærkvöldsins. Þar sýndi Eva Laufey hvernig maður reiðir fram Kjúkling Milanese. 

Kjúklingur Milanese

*Fyrir fjóra fullorðna

Stökkar kjúklingabringur

  • 4 – 5 kjúklingabringur
  • Salt og pipar
  • Ólífuolía
  • 5 – 6 dl brauðmylsna
  • 2 egg
  • 100 – 150 g hveiti
  • 1 dl nýrifinn parmesan
  • 1 stór mozzarella kúla (120 g)
  • 1 sítróna



    Aðferð:

    Skerið kjúklingabringurnar í tvennt og fletjið aðeins út, með kjöthamri eða kökukefli til dæmis.

    Kryddið bringurnar með salti og pipar.

    Pískið tvö egg í skál, setjið brauðmylsnu í aðra skál og hveiti í þá þriðju. Það er svolítið erfitt að reikna hlutföllin nákvæmlega en bætið bara við ef þið þurfið.

    Setjið kjúklingabringu fyrst ofan í hveitið, síðan ofan í eggin og að lokum ofan í brauðmylsnuna.

    Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið bringurnar í eina til eina og hálfa mínútu á hvorri hlið. Það má gjarnan krydda með meiri salti og pipar. Rífið niður parmesan yfir kjúklinginn.

    Setjið bringurnar í eldfast form eða á pappírsklædda ofnplötu og inn í ofn við 180°C í 15 mínútur. Bringurnar eru mjög þunnar og þurfa þess vegna ekki lengri eldunartíma.

    Skerið mozzarella í sneiðar og leggið ofan á hverja bringu, stillið þá ofninn á grill og eldið bringurnar áfram í um það bil mínútu eða þar til osturinn er bráðnaður.

    Kreistið safa úr sítrónu yfir bringurnar áður en þið berið þær fram með pasta og tómat-og basilíkusósu.

    Tómat-og basilíkusósa

    1 msk ólífuolía

    1 laukur

    2 hvítlauksrif

    1 krukka pastasósa með basilíku  (425 g )

    ½ kjúklingateningur

    Salt og pipar

    Handfylli fersk smátt söxuð basilíka

    Aðferð:

    Hitið ólífuolíu í potti, skerið lauk og hvítlauk afar smátt og steikið í smá stund.

    Bætið pastasósunni,  kjúklingatening og basilíku saman við og hrærið vel í sósunni. Kryddið til með salti og pipar.

    Lækkið hitann og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.

    Sjóðið spaghettí samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum og berið fram með kjúklingabringunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×