Lífið

Elton tengdi feðga og spilar nú lag sonarins

Benedikt Bóas skrifar
Arnór söng lag Eltons John, Your Song, í brúðkaupi móður sinnar í fyrra. Heiðraði þannig minningu föður síns sem lést árið 2006.
Arnór söng lag Eltons John, Your Song, í brúðkaupi móður sinnar í fyrra. Heiðraði þannig minningu föður síns sem lést árið 2006.
„Tónlistin hans var tónlistin sem við pabbi gátum alltaf hlustað á saman. Þó að ég hafi verið að hlusta á eitthvert klikkað rokk þá gátum við alltaf sett Elton John á í bílnum og notið,“ segir söngvarinn Arnór Dan Arnarson.

Sjálfur Elton John ætlar að spila lag hans, Stone by Stone, í útvarpsþætti sínum Rocket Hour í dag.



Arnór segir að margir í fjölskyldunni séu miklir aðdáendur Eltons John, þótt pabbi hans hafi verið þeirra mestur en hann lést árið 2006. 

Stórstjarnan Elton John ætlar að spila lag Arnórs, Stone by Stone, í útvarpsþætti sínum í dag. NordicPhotos/Getty
„Ég fór að hágráta þegar ég áttaði mig á að ég gæti ekki hringt í hann því mig langaði svo að eiga þessa stund með honum.

Það hefði verið svo ótrúlega skemmtilegt ef pabbi hefði verið á lífi og upplifað þessa stund. Fyrstu tónleikarnir sem ég fór á og við saman voru tónleikar Eltons John í Kaupmannahöfn.

Ég tárast bara við að segja þetta því það sem maður gerir í lífinu er í raun bara til að gera foreldra sína stolta. Maður reynir að gera margt fyrir þau sem gáfu okkur lífið.“

Reginald Dwight, betur þekktur sem Elton John, kann þá listi betur en margir að hamra píanóið og syngja.David Redfern/Redferns
Arnór er á tónleikaferðalagi með Agent Fresco sem hann segir að gangi vel. Fréttirnar um lagið og Elton hristu hópinn betur saman. 

„Við eigum 16 gigg eftir og það gengur allt mjög vel og allir í góðu stuði. Svona túrar taka á en að fá svona frétt léttir lundina í öllum. Keli trommari sagði einmitt áðan: Pældu í því að þú hefur verið í huganum á Elton John í nokkrar mínútur. Hann er búinn að eyða tíma í að hugsa um þig.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×