Sport

Eru álög á Cleveland Browns?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Klúðrarinn frá Cleveland. Gonzalez greyið hefur örugglega ekki sofið mikið í nótt.
Klúðrarinn frá Cleveland. Gonzalez greyið hefur örugglega ekki sofið mikið í nótt. vísir/getty
Það eru 632 dagar síðan NFL-lið Cleveland Browns vann síðast leik. Liðið er búið að fá tvö tækifæri til þess að vinna leik í vetur en klúður leikmanna Cleveland er eins og úr góðri lygasögu.

Browns tapaði öllum leikjum sínum á síðustu leiktíð en síðasti sigur liðsins kom á aðfangadag fyrir tveimur árum síðan.

Í fyrsta leik tímabilsins gerði liðið jafntefli í leik þar sem tækifæri gáfust til þess að vinna en spörkin klikkuðu.

Það verður að teljast frekar ólíklegt að sparkarinn Zane Gonzalez verði áfram með vinnu um næstu helgi eftir hörmungina sem hann bauð upp á er Browns tapaði gegn New Orleans í gær, 21-18.

Gonzalez klúðraði fjórum spörkum í gær sem kostuðu liðið átta stig. Hann hefði getað komið liðinu í eins stigs forystu með mínútu eftir í gær en klúðraði þá aukastiginu. Þá hafði Cleveland skorað frábært snertimark á fjórðu tilraun. Sending frá miðju endaði með snertimarki. Það snertimark og spark Gonzalez má sjá hér að neðan.





Dýrlingarnir náðu þriggja stiga forystu er 21 sekúnda var eftir. Það var samt enn tími til þess að koma Gonzalez í stöðu til þess að skora. Að þessu sinni af 52 jarda færi en hann klúðraði eins og venjulega. Tvær vallarmarkstilraunir í súginn sem og tvær tilraunir fyrir aukastigi. Hörmulegt.

„Þetta tap skrifast 100 prósent á mig. Ég get engum um kennt nema sjálfum mér. Ég brást öllum hér í dag og það er miður því það er svo langt síðan við unnum leik,“ sagði niðurbrotinn Gonzalez eftir leik.

Eftir leikinn sat aumingja sparkarinn einn og yfirgefinn á bekknum. Enginn kom að hughreysta hann nema Wil Lutz, sparkari Saints, sem fann til með kollega sínum.





Cleveland á heimaleik gegn NY Jets á fimmtudag og fær þá enn eitt tækifærið til þess að vinna leik. Flestir eru samt farnir að spá í hvernig Cleveland ætli að klúðra sínum málum á ævintýralegan hátt enn eina ferðina.

NFL

Tengdar fréttir

Lagði skóna á hilluna í hálfleik

Eitt það ótrúlegasta sem hefur sést í íþróttum í háa herrans tíð átti sér stað í leik Buffalo Bills og LA Chargers í NFL-deildinni í gær. Hinn reyndi bakvörður Buffalo, Vontae Davis, lagði þá skóna á hilluna í hálfleik. Já, hann hætti bara í miðjum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×