Lífið

Jimmy Fallon leitar í smiðju Rúnars Freys

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fallon reynir að giska á hvaða lag Witherspoon er að túlka.
Fallon reynir að giska á hvaða lag Witherspoon er að túlka.
Í þætti Jimmy Fallon á dögunum kepptu þau Reese Witherspoon, Fallon, Lenny Kravitz og Zoë Kravitz í svipaðri keppnu og sást svo oft í Spurningabombunni á Stöð 2 á sínum tíma.

Fallon var í liði með Witherspoon og þau feðgin voru síðan saman í liði. Leikurinn gekk út á það að einn aðilinn átti að túlka lag meðan hinn giskaði á hvaða lag væri um að ræða.

Giskarinn var með heyrnatól með dúndrandi tónlist eins og þekktist í Spurningabombunni á sínum tíma.

Þá átti leikarinn Rúnar Frey Gíslason að túlka lag með dansatriði og keppendur Spurningarbombunnar áttu að reyna að giska hvaða lag væri um að ræða.

Nokkuð skemmtileg viðureign eins og sjá má hér að neðan. Þess má geta að umræddur leikur er ekki upphaflega smíðaður í Spurningabombunni og hefur komið við sögu í nokkrum skemmtiþáttum um heim allan. 

Hér að neðan má síðan sjá þegar Rúnar Freyr túlkaði lagið Open Your Heart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×