Innlent

Lokuðu tveimur kannabisræktunum á Austurlandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Ræktunin fór fram á Breiðdalsvík og í Fellabæ en samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni var lagt hald á "töluvert magn“ af kannabisefnum.
Ræktunin fór fram á Breiðdalsvík og í Fellabæ en samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni var lagt hald á "töluvert magn“ af kannabisefnum. Vísir/Getty
Lögreglan á Austurlandi stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum í umdæminu í dag, með aðstoð Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ræktunin fór fram á Breiðdalsvík og í Fellabæ en samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni var lagt hald á „töluvert magn“ af kannabisefnum. Nákvæm tala liggur ekki fyrir enn.

Þá lagði lögreglan hald á tæki sem tengjast framleiðslunni, fjármuni, gróðurlampa og margs konar búnað.

Lögreglan handtók tvo karla og tvær konur vegna málsins og fór í fleiri húsleitir sem tengjast málinu beint. Rannsókn stendur enn yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×