Tagliafico setti tvö í öruggum sigri Ajax

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Tagliafico fagnar öðru marka sinna
Tagliafico fagnar öðru marka sinna vísir/getty
Ajax hóf leik í E-riðli Meistaradeildar Evrópu með öruggum 3-0 sigri á AEK frá Aþenu í dag.

Það var markalaust í hálfleik en strax í upphafi seinni hálfleiks skoraði Nicolas Tagliafico með skoti úr miðjum vítateig gestanna frá Grikklandi.

Donny van de Beek tvöfaldaði forystu heimamanna eftir fyrirgjöf Dusan Tadic á 77. mínútu áður en Tagliafico tryggði 3-0 sigur á síðustu mínútu venjulegs leiktíma.

Sigur heimamanna var verðskuldaður, þeir voru mikið meira með boltann og áttu 16 skottilraunir. Gestirnir í AEK náðu ekki einu einasta skoti á markrammann.

Með þeim í E-riðli eru Benfica og Bayern München sem mætast í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira