Lífið

Þorbjörg og Hallbjörn selja stórglæsilegt einbýli í Fossvoginum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fossvogurinn er gríðarlega vinsæll staður í höfuðborginni.
Fossvogurinn er gríðarlega vinsæll staður í höfuðborginni. vísir/valli
Hjónin Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Hallbjörn Karlsson hafa sett stórglæsilegt einbýlishús í Bjarmalandinu í Fossvoginum á sölu.  Þorbjörg er fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. 

Um er að ræða 280 fermetra hús sem byggt var árið 1967-68 en allt enduruppgert árin 2005 -2007. Mbl.is greindi fyrst frá.

Húsið hannaði Guðmundur Kr. Kristinsson á sínum tíma og er það innst í botnlanga við opið svæði. Sigurður Halldórsson arkítekt hjá Glámu-Kím sá um endurgerðina árið 2005. Þakið var sett í upprunalegt horf og settur á þak-kantur úr kopar. Húsið var stækkað á fjórum stöðum og er á einni hæð á rólegum stað í Fossvoginum. 

Alls eru fimm svefnherbergi í eigninni en þau hjónin óska eftir tilboði í eignina. Fasteignamat hennar er 136 milljónir. Hjónaherbergið er hjónasvíta með baðherbergi og fataherbergi og hurð út í garð. 

Garðurinn er glæsilegur með heitum potti. Pallur og grindverk úr harðvið. Pallarnir fyrir utan eru úr harðvið og eru í stíl við parketið inni.

Garðurinn var hannaður upp á nýtt, en Þráinn Hauksson hjá Landslagi sá um það. Hér að neðan má sjá myndir af þessari fallegu eign.

Stórglæsilegt hús í botnlaga í Fossvoginum.
Æðisleg og virkilega björt stofa.
Borðstofan og eldhúsið eru samliggjandi og er opið á milli.
Allir gluggar í húsinu eru mjög stórir og því er lýsingin náttúruleg og falleg.
Hægt að liggja í baði og horfa út í garð.
Pallurinn er svakalegur.
Sennilega ein flottasta hjónasvíta landsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×