Messan: Hverjir eiga að vera miðverðir Manchester United liðsins? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2018 15:00 Victor Lindelöf og Chris Smalling í leik á móti Chelsea. Vísir/Getty
Mikil umræða hefur verið um vandamál Manchester United í miðri vörninni ekki síst eftir að liðið fékk á sig sex mörk í tveimur leikjum. Messan velti því fyrir sér í gær hvaða miðverðir eigi skilið byrjunarliðssæti í Manchester United liðinu. Til greina komu þeir Victor Lindelöf, Eric Bailly, Phil Jones og Chris Smalling. Ríkharð Guðnason, umsjónarmaður Messunnar spurðu gesti sína hreint út hverjir ættu að vera byrjunarliðsmiðverðir liðsins. Hjörvar Hafliðason var fljótur að svara: „Chris Smalling og Victor Lindelöf,“ sagði Hjörvar og Brynjar Björn Gunnarsson tók undir það. „Lindelöf hefur fengið mikla gagnrýni undanfarin en ég er ekki tilbúinn að afskrifa hann alveg,“ sagði Brynjar Björn. „Það sem kannski vantar í þessa hafsenta fernu er einn afgerandi hafsent. Við sáum það á fyrirgjöfum inn í vítateiginn undir lok leiksins á móti Burnley. Þeir voru ekki að ráða neitt sérstaklega vel við það,“ sagði Brynjar Björn. Eru miðverðir Manchester United í dag því ekki leiðtogaefni? „Þeir taka ekki stjórn á stöðunni inn í teig og stanga ekki þá bolta í burtu sem þarf að stanga í burtu,“ sagði Brynjar Björn. Það má finna alla umfjöllun Messunnar um miðvarðavandræði Manchester United hér fyrir neðan.
Enski boltinn Mest lesið „Verður gönguferð í garðinum fyrir þá“ Körfubolti „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ Fótbolti „Þetta er saga tímabilsins og það gengur ekki lengur“ Fótbolti „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Íslenski boltinn „Förum glaðir úr Lautinni“ Fótbolti „Allt þetta umtal um hvernig hann hagar sér er orðið þreytt“ Körfubolti Indiana Pacers jöfnuðu einvígið gegn Knicks Körfubolti Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Handbolti Gregg: Algjörlega óásættanlegt Fótbolti Líf Chaz á Íslandi gæti endað á Netflix Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsti stóri titill United-kvenna Enn ekkert skorað í umspilinu Trossard skaut Arsenal á toppinn Leeds í fínum málum eftir fyrri leikinn Arteta hælir Ten Hag og vonast til að hann haldi áfram Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla Þriðji sigurinn í röð og daumurinn um Evrópusæti lifir Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll Gvardiol skaut City á toppinn Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Cole Palmer valinn bestur í apríl Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Sjá meira