Innlent

Leita eftir vitnum að hópárás á Flúðum um verslunarmannahelgina

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Flúðir
Flúðir Fréttablaðið/Vilhelm
Lögreglan á Suðurlandi óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað 6. ágúst síðastliðinn þar sem hópur manna veittist að tveimur karlmönnum.

Árásin átti sér um verslunarmannahelgina fyrir utan aðalinnganginn að Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum um klukkan 01.40 að því er fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Hægt er að hafa samband við lögreglu á Suðurlandi í gegnum Facebook-síðu hennar eða í síma 444-2000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×