Enski boltinn

Karius: Ég gekk aldrei einn

Dagur Lárusson skrifar
Loris Karius.
Loris Karius. vísir/getty
Loris Karius gekk til liðs við Besiktas í gær á tveggja ára lánsamning en hann kvaddi Liverpool og stuðningsmenn þeirra á fallegan hátt í dag á Twitter.

 

Eins og minnugt er þá gerði Karius tvö hræðileg mistök í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í maí sem að flestra mati kostaði Liverpool leikinn. Hann segir þó í kveðju sinni til stuðningsmanna Liverpool að hann hafi aldrei fundið fyrir hatri.

 

„Ég er stoltur af því að vera orðinn hluti af Besiktas fjölskyldunni núna,“ sagði Karius.

 

„Móttökurnar sem ég fékk á flugvellinum voru hreint út sagt magnaðar, ég mun gefa mig allan fyrir Besiktas.“

 

„Ég vil einnig þakka öllum stuðningsmönnum Liverpool, þið leyfðuð mér aldrei að ganga einn.“ 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×