Innlent

Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir umferðaróhapp á Reykjanesbraut

Birgir Olgeirsson skrifar
Einn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi en engar upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu um alvarleika meiðsla þeirra sem voru í bílnum.
Einn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi en engar upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu um alvarleika meiðsla þeirra sem voru í bílnum. Vísir/Stefán
Fjórir voru fluttir á sjúkrahús eftir umferðaróhapp á Reykjanesbrautinni við ytri Njarðvík um klukkan þrjú í dag.

Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kallaðir á vettvang eftir að tilkynning barst um bílveltu. Fjórir voru í bílnum en þrír þeirra voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja af sjúkraflutningamönnum og lögreglu.

Einn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi en engar upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu um alvarleika meiðsla þeirra sem voru í bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×