Fyrirsæta dæmd fyrir morð á starfsbróður Atli Ísleifsson skrifar 13. ágúst 2018 21:30 George Koh var handtekinn í janúar síðastliðinn. Vísir/AP
Dómstóll í Bretlandi hefur dæmt fyrirsætuna George Koh seka um morð á starfsbróður sínum Harry Uzoka í London fyrr á þessu ári. Til átaka kom milli mannanna eftir deilur þeirra á Instagram sem snerust um konu.Guardian greinir frá því að hinn 24 ára Koh hafi ásamt tveimur félögum sínum farið á fund Uzoka, og stungið hann í hjartað eftir að þeir höfðu att orðaskipti í um tvær mínútur. Uzoka, sem var 25 ára og naut meiri velgengni en Koh í bransanum, lést á gangstéttinni fyrir utan heimili sitt í Sherpherd‘s Bush í vesturhluta London þann 11. janúar síðastliðinn. Koh og Uzoka höfðu sammælst um það á Instagram að hittast umrætt kvöld til að leysa deilur sínar. Þeir mættu báðir vopnaðir, Koh vopnaður tveimur hnífum en Uzoka lóðastöng. Segir í dómnum að félagar Koh hafi þrýst Uzoka upp að bíl og haldið honum þar á meðan Koh stakk hann með hníf. Félagar Koh voru einnig dæmdir í málinu, annar fyrir morð en hinn manndráp.Með þráhyggju Saksóknarinn í málinu sagði fyrir dómi að Koh hafi verið með þráhyggju gagnvart Uzoka, en báðir störfuðu í sama geira, þóttu svipa til hvors annars, en að Uzoka hafi notið meiri velgengni en Koh. Sagði saksóknarinn að Uzoka, sem hafði starfað fyrir GQ, Mercedes og Zara, hafi þótt Koh pirrandi en ekkert meira en það. Hann hafi þó orðið reiður Koh eftir að sá hafi haldið því fram að hann hafi sofið hjá kærustu Uzoka. Dómari mun úrskurða um refsingu yfir mönnunum í næsta mánuði.
Mest lesið Sindri Freyr er látinn Innlent Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Innlent Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Innlent Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Innlent „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Innlent Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Innlent Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Innlent Fleiri fréttir „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Notaði niðrandi orð um samkynhneigða karla á lokuðum fundi Trump lofar að útrýma mótmælum til stuðnings Palestínu Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Segja Frakka ætla að senda hermenn til Úkraínu Sautján ára „hermaður Hitlers” dæmdur í sjö ára fangelsi Töldu að enginn ætti að deyja í árásunum AfD náði ekki að sigra eftir hrinu hneykslismála Óttast að um 2.000 hafi látist í aurskriðum á föstudag Alríkislögreglan aðstoðar við leit að munum úr British Museum Átján látnir eftir mikið óveður í miðríkjum Bandaríkjanna Hart sótt að Sunak vegna hugmynda um herþjónustu fyrir 18 ára Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Átta á sjúkrahúsi eftir mikla ókyrrð 700 talin af vegna aurskriðu í Papúa Nýju-Gíneu Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Halda áfram árásum á Rafah Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun „Við munum vinna þennan slag“ Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins