Handbolti

Lykilmenn hvíldir í tapi gegn Spánverjum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Haukur var mest megnis hvíldur í kvöld ásamt Viktori, markverði.
Haukur var mest megnis hvíldur í kvöld ásamt Viktori, markverði. mynd/heimasíða EHF
Íslenska landsliðið U18 ára í handbolta tapaði með sex marka mun gegn Spánverjum í lokaleik milliriðilsins.

Lokatölur urðu 33-27 en Ísland hafði fyrir leikinn tryggt sér sæti í undanúrslitum. Spánverjar leiddu 18-13 í hálfleik.

Einar Örn Sindrason skoraði fimm mörk, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson og Viktor Andri Jónsson fjögur. Lykilmenn íslenska liðsins voru hvíldir fyrir undanúrslitin.

Ísland spilar því við Króatíu í undanúrslitunum en leikið verður annað kvöld. Þrjár Norðurlandaþjóðir eru í undanúrslitunum því í hinum undanúrslitaleiknum mætast Danmörk og Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×