Lífið

Borgar skólagjöld tveggja svartra nemenda í Cambridge

Bergþór Másson skrifar
Stormzy.
Stormzy. Vísir/Getty
Breski rapparinn Stormzy tilkynnti í dag að hann muni borga skólagjöld og uppihald tveggja svartra nemenda við Cambridge háskóla í ár og á næsta ári.

Til þess að geta hlotið styrkinn frá Stormzy þurfa nemendurnir að vera svartir á hörund og að vera samþykktir inn í hinn mikils metna Cambridge háskóla.

Cambridge er einn virtasti háskóli heims en hefur hann ítrekað verið gagnrýndur fyrir litla fjölbreytni.

Hinn 25 ára Stormzy er einn vinsælasti rappari Bretlands og sló hann rækilega í gegn í fyrra með plötu sinni „Gang Signs & Prayers.“

Hann hefur spilað tvisvar sinnum á Secret Solstice hátíðinni hérlendis. Fyrst árið 2014, þá nánast óþekktur, og síðan aftur í ár, sem stórstjarna á stærsta sviðinu.

Á Instagram segir Stormzy að „við sem minnihlutahópur erum fámenn í topp-háskólunum og ég vona að þessi skólastyrkur minni fólk á að við getum léttilega stundað nám á svona stöðum.“

Einnig segir hann að af öllum afrekum sínum, sé þetta það sem hann er stoltastur af. „Ég hlakka til að sjá unga svarta snilllinga slá í gegn í Cambridge.“

 
I am very very very proud to announce the launch of my new scholarship “The Stormzy Scholarship” in partnership with Cambridge University. With this scholarship we will be funding and covering the full tuition and maintenance for 2 black students this year and 2 black students in 2019 to study at Cambridge University. We as a minority are still heavily under represented at the top universities and I pray this scholarship serves as a reminder that we are more than capable of studying at places of this caliber. Congratulations to all the A-Level students getting their results today, be proud of yourselves despite what you got and overstand that this is only the tip of the iceberg for what’s to come! This is my proudest venture thus far and I look forward to seeing some young black geniuses go on to achieve at Cambridge via this scholarship. @cambridgeuniversity www.cam.ac.uk/stormzyscholarship for all info. Applications close on Thursday 30th August! #StormzyScholarship

A post shared by Gang Signs & Prayer (@stormzyofficial) on Aug 16, 2018 at 2:18am PDT


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×