Þrenna frá Aguero þegar Englandsmeistararnir léku sér að Huddersfield

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ekki flókið sport fyrir suma.
Ekki flókið sport fyrir suma. Vísir/Getty
Yfirburðir Englandsmeistara Manchester City voru algjörir þegar Huddersfield kom í heimsókn á Etihad leikvanginn í 2.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Heimamenn keyrðu yfir gestina strax frá fyrstu mínútu og voru komnir í 3-0 eftir rúmlega hálftíma leik. Jon Stankovic klóraði hins vegar í bakkann fyrir gestina undir lok fyrri hálfleiks.

Í síðari hálfleik héldu meistararnir hins vegar áfram að leika sér að gestunum og unnu að lokum 6-1 sigur þar sem Sergio Aguero gerði þrjú marka City.

City því með fullt hús stiga eftir sigur á Arsenal í fyrstu umferð en Huddersfield hefur fengið tvo skelli í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins; 3-0 gegn Chelsea í fyrstu umferð og 6-1 gegn Man City í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira