Enski boltinn

United enn á eftir Maguire sem er skotmark númer eitt

Anton Ingi Leifsson skrifar
Maguire þakkar stuðninginn á HM í sumar.
Maguire þakkar stuðninginn á HM í sumar. vísir/getty
Manchester United vill klófesta Harry Maguire frá Leicester áður en félagsskiptaglugginn lokar næsta fimmtudag. Enska úrvalsdeildin hefst svo næsta föstudag.

Maguire er talinn vera helsta skotmark Jose Mourinho, stjóra Man. United, en Mourinho vill ólmur fá sér miðvörð þrátt fyrir að eiga úr nóg af miðvörðum að velja.

United eru sagðir undirbúa tilboð í Magurie sem lék vel með Englandi á HM en United eru taldir þurfa að fara ansi langt ofan í pokann því Leicester vill ekki selja Maguire.

Nái United ekki að klófesta Maguire eru þeir Toby Alderwerield og Yerri Mina taldir næstir á blaði hjá Mourinho. Toby er á sínu síðasta ári hjá Tottenham en Mina fær fá tækifæri hjá Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×