Enski boltinn

Sjáðu hvernig Aguero kláraði Chelsea

Anton Ingi Leifsson skrifar
Manchester City vann fyrsta bikar tímabilsins á Englandi er liðið vann 2-0 sigur á Chelsea á Wembley í dag.

Argentínumaðurinn Sergio Aguero var í stuði en hann skoraði bæði mörk leiksins. Þau komu í sitt hvorum hálfleiknum.

Aguero fékk einnig færi til að fullkomna þrennuna en Willy Caballero, landi hans frá Argentínu, sá þá við honum. Leikur Chelsea var ekki upp á marga fiska.

Mörk Aguero má sjá hér að ofan sem og það helsta úr leiknum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×