Enski boltinn

William ánægður hjá Chelsea og ekki á leið burt

Anton Ingi Leifsson skrifar
Willian í baráttunni við Kyle Walker í gær.
Willian í baráttunni við Kyle Walker í gær. vísir/getty
Willian, leikmaður Chelsea, segist vilja vera áfram hjá bikarmeisturunum þrátt fyrir áhuga annarra félaga í sumar.

Þessi 29 ára gamli Brassi hefur verið orðaður við bæði Barcelona og Manchester United en spænski risinn er sagður hafa boðið þrisvar í Willian.

„Það hefur alltaf verið skýrt hjá mér að ég er mjög ánægður að spila fyrir Chelsea. Ég hef aldrei sagt að ég vilji yfirgefa félagið,” sagði Willian eftir 2-0 tap gegn Man. City í Samfélagsskildinum í gær.

„Það er nýr kafli, með nýjum stjóra og ég átti mjög gott spjall við hann. Svo vonandi getum við notið þessa að vinna helling af leikjum. Okkur líkar hvernig við spilum og verðum að gera allt til að bæta okkur.”

„Auðvitað er aðeins erfiðara í byrjun að venjast nýjum lekstíl, sem breytir öllu, en við höfum allt til að bæta okkur, að halda áfram okkar vinnu og byrja tímabilið vel.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×