Enski boltinn

Tíu líklegustu félagaskipti vikunnar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sky Sports tók saman tíu líklegustu félagaskiptin fyrir vikuna.
Sky Sports tók saman tíu líklegustu félagaskiptin fyrir vikuna. vísir/getty
Félagaskiptaglugginn á Englandi lokar fyrr en venjulega í ár. Félagaskiptareglum var breytt í fyrra en nú lokar glugginn áður en enska úrvalsdeildin hefst.

Fjórir dagar eru nú eftir af glugganum en deildin hefst á föstudaginn með leik Manchester United og Leicester. Glugginn lokar á miðnætti kvöldið áður og er því stutt eftir.

Mörg lið vilja enn styrkja raðirnar en margt hefur dregist á langinn vegna Heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu í sumar. Fer Maguire til Manchester? Er Courtois að fara til Real? Er sagan endalausa með Martial á enda?

Sky Sports tók saman tíu líklegustu félagaskiptin fyrir vikuna og hér að neðan má sjá þann lista. Nánari lýsingar á listanum má finna á vef Sky Sports.

Listinn í heild sinni:

Harry Maguire til Man. Utd

Wilfried Zaha til Chelsea

Thibaut Courtois til Real Madrid

Yerry Mina til Everton

Anthony Martial til Tottenham, Chelsea eða frá Englandi

Joe Hart til Burnley

Aaron Ramsey til Chelsea eða Liverpool

Willian til Man. Utd

Toby Alderweireld til Man. Utd

Jack Grealish til Tottenham




Fleiri fréttir

Sjá meira


×