Lífið

Brekkusöngurinn 2018 í heild sinni: Ingó veðurguð hélt uppi stuðinu í roki og rigningu í Herjólfsdal

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ingó Veðurguð og Sverrir Bergmann héldu uppi stemningunni í Herjólfsdal í gærkvöldi.
Ingó Veðurguð og Sverrir Bergmann héldu uppi stemningunni í Herjólfsdal í gærkvöldi. Vísir/Samsett
Mikil stemning var í Herjólfsdal á lokakvöldi Þjóðhátíðar þrátt fyrir að veðrið hafi ekki leikið við gesti. Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, leiddi sönginn líkt og undanfarin ár við mikinn fögnuð viðstaddra - í roki og rigninu.

Kveikt var á blysunum á miðnætti, eins og hefðin býður, og þegar Ingó hafði lokið sér af stigu þeir Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar Fjallabróðir á stokk. 

Brekkusöngurinn var sýndur í beinni útsendingu á Vísi, Stöð 2 og á Bylgjunni í gærkvöldi en horfa má á sönginn í heild sinni í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×