Enski boltinn

Hægt að fylla þrjú byrjunarlið með lánsleikmönnum Chelsea

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ruben Loftus-Cheek var með enska landsliðnu á HM en fær líklega ekki tækifæri hjá Chelsea í vetur.
Ruben Loftus-Cheek var með enska landsliðnu á HM en fær líklega ekki tækifæri hjá Chelsea í vetur. Vísir/Getty
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur verið rólegt á félagsskiptamarkaðnum í vor en það er kannski ekkert skrýtið.

Það er nefnilega til nóg af leikmönnum á Stamford Bridge og kannski bara spurning um að kalla nokkra þeirra úr láni.

ESPN hefur tekið það saman að alls eru 33 leikmenn í eigu Chelsea sem eru annaðhvort í láni hjá öðru félagi eða á leið í lán til annars félags.

Þetta er rosalegur langur listi eins og sjá má hér fyrir neðan.







Leikmenn Chelsea eru flestir á láni í neðri deildum enska boltans en þeir hafa líka verið lánaðir til liða í Skotlandi, Hollandi, Þýskalandi, Frakklandi, Tyrklandi, Brasilíu, Ítalíu, Spáni, Rússlandi og Serbíu.

Það er ekkert grín fyrir unga leikmenn að vinna sér sæti í aðalliði Chelsea enda hefur félagið jafnan keypt til sína stórar stjörnur á hverju ári.

Það má líka eflaust gagnrýna þessa taktík Chelsea að safna að sér leikmönnum en eitthvað sjá þeir í þessum strákum og hver veit nema að þeir fái tækifæri á Brúnni á næstu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×