Enski boltinn

Sjálfstraustið í botni hjá Liverpool eftir 3-1 sigur á Torino

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Liverpool fagna á Anfield í kvöld.
Leikmenn Liverpool fagna á Anfield í kvöld. vísir/getty
Liverpool heldur áfram að spila vel á undirbúningstímabilinu en í kvöld vann liðið 3-1 sigur á Torino.

Leikið var á Anfield í kvöld en þetta var síðasti leikur Liverpool áður en það mætir west Ham á sama velli á laugardaginn er enska úrvalsdeildinn hefst.

Roberto Firmino kom Liverpool yfir á 21. mínútu og einungis þremur mínútum síðar tvöfaldaði Georgino Wijnaldum forystuna.

Á 31. mínútu klóraði Andrea Belotti í bakkann fyrir Torino en þremur mínútum fyrir leikslok kom Daniel Sturridge í 3-1.

Liverpool hefur því unnið síðustu fjóra leiki og skorað í þeim fjórtán mörk en einungis fengið á sig þrjú. Þeir mæta heitir til leiks í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×