Golf

Hetjuleg frammistaða Haraldar dugði ekki til á fyrsta risamótinu

Ísak Jasonarson skrifar
Haraldur Franklín er því miður úr leik.
Haraldur Franklín er því miður úr leik. vísir/getty
Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús varð í dag fimm höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn á Opna mótinu sem fer fram á Carnoustie vellinum í Skotlandi.

Haraldur lék annan hringinn í mótinu á 7 höggum yfir pari og lauk því leik á 8 höggum yfir pari eftir flottan fyrsta hring.

Haraldur hóf leik á 1. teig í dag og mátti sjá að honum leið töluvert betur en á fyrsta hringnum. Hann fékk fjögur pör í röð og hefði jafnvel getað verið enn betri en púttin voru ekki alveg að detta hjá honum.

Á 5. holu lenti hann hins vegar í vandræðum þegar hann missti innáhöggið í glompu við flötina. Þar var boltinn grafinn og eftir nokkur högg í kringum flötina var þrefaldur skolli niðurstaðan.

Á 6. holu héldu vandræðin áfram þegar Haraldur sló út fyrir vallarmörk í öðru högginu og fékk hann tvöfaldan skolla þar.

Haraldur sýndi það á fyrsta hringnum að hann gefst aldrei upp og á 9. holu fékk hann fugl. Á þeim tíma var hann einungis tveimur höggum frá niðurskurðarlínunni.

 

Haraldur fékk svo skolla á 12. holu og virtist þá nokkurn veginn vera búinn að kasta þessu frá sér.

Hlutirnir áttu þó eftir að breytast því Haraldur fékk fugla á 13. og 14. holu og var þar með einungis höggi frá niðurskurðarlínunni og til alls líklegur fyrir lokaholurnar.

Þær gengu hins vegar ekki nógu vel og kláraði Haraldur mótið á 8 höggum yfir pari, fimm höggum frá niðurskurðinum.

Haraldur getur þó borið höfuðið átt eftir sína frammistöðu en hann sýndi það báða dagana að hann átti fullt erindi á þessu elsta risamóti heims.

Bandaríkjamennirnir Kevin Kisner og Zach Johnson eru í forystu á Opna mótinu þegar mótið er hálfnað á 6 höggum undir pari.

Kisner, sem var einnig í forystu eftir fyrsta hringinn, er í leit að sínum fyrsta risatitli, en Johnson er tvöfaldur risameistari.

Stöðuna í mótinu má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×