Íslenski boltinn

Sjáðu markið sem skaut HK á toppinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bjarni Gunnarsson skoraði sitt sjötta mark og tryggði HK áttunda sigurinn í Inkasso-deildinni er liðið vann 1-0 sigur á Magna.

HK er eina liðið í efstu tveimur deildum karla sem hefur enn ekki tapað leik og það breyttist ekki á Grenivík í dag.

Bjarni fékk boltann út í teiginn og kom boltanum yfir línuna áður en Steinþór Már Auðunsson, markvörður Magna, náði til boltans.

Anthony Coggins, dómari frá Englandi, dæmdi leikinn og dæmdi mark en fékk væntanlega góða aðstoð frá aðstoðardómara tvö, Vilhelm Adolfssyni.

Markið má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

HK á toppinn eftir áttunda sigurinn

HK er enn ósigrað í fyrstu deild karla eftir að liðið vann 1-0 sigur á Magna á Grenivík í dag í Inkasso-deild karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×