Innlent

SÍF vísar formanni úr stjórn vegna umdeildrar greinar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Davíð Snær Jónsson, fyrrverandi formaður SÍF.
Davíð Snær Jónsson, fyrrverandi formaður SÍF. mYND/Aðsend
Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, vísaði í dag formanni sambandsins, Davíð Snæ Jónssyni, úr stjórn vegna umdeildrar greinar sem birt var á Vísi í síðustu viku. Davíð er sagður hafa látið birta greinina í óþökk framkvæmdastjórnar sambandsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÍF.

Grein Davíðs bar titilinn „Pólitísk slagsíða í kennslustofunni“ og birtist í Fréttablaðinu og á Vísi þann 19. júlí síðastliðinn. Í greininni beindi Davíð spjótum sínum að kynjafræði sem skyldufagi í framhaldsskólum og líkti henni við „marxísk fræði“. Greinin vakti bæði athygli og umtal og lýstu fyrrverandi formenn SÍF yfir óánægju með birtingu hennar. Þá var ljóst að með skrifum sínum talaði Davíð gegn opinberri stefnu SÍF.

Sjá einnig: Formaður SÍF líkir kynjafræðikennslu við marxísk fræði

Í tilkynningu SÍF segir að brottrekstur Davíðs byggi á því að hann hafi ítrekað virt kröfur um samþykki stjórnar fyrir greinarbirtingu að vettugi. Þá sé það einnig brottrekstrarsök að beita sér gegn stefnu sambandsins með þeim hætti sem Davíð gerði.

„Ummæli  greinarinnar vinna gegn tilgangi, markmiðum og stefnu SÍF og er þar af leiðandi brot á lögum félagsins, vinnureglum stjórnar og siðareglum. Vegna þessa og vegna samskiptaörðugleika eftir birtingu greinarinnar gaf meirihluti stjórnar Davíð Snæ kost á að segja af sér,“ segir í tilkynningu SÍF.

Það hafi Davíð hins vegar ekki gert og því hafi sambandið ákveðið að vísa honum úr framkvæmdastjórn.

„Í stað þess að sjá sóma sinn í að segja af sér boðaði Davíð Snær til fundar tæpri viku seinna. En meirihluti framkvæmdastjórnar fordæmir þau brot á lögum og reglum SÍF og kærir sig ekki um að starfa lengur undir hans formennsku. Því hefur Davíð Snæ verið vísað úr framkvæmdastjórn á grundvelli 32. greinar laga SÍF.“

Gjaldkeri stjórnar SÍF, Einar Freyr Bergsson, valdi einn stjórnarmeðlima að skrifa ekki undir brottvísun Davíðs. Varaformaður SÍF, Einar Hrafn Árnason, mun taka við störfum formanns fram að aðalþingi sambandsins sem haldið verður dagana 8. og 9. september næstkomandi.

Tilkynning SÍF í heild sinni:

Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, vísaði í dag formanni sambandsins, Davíð Snæ Jónssyni, úr stjórn vegna greinar hans sem birt var á Vísi í síðustu viku. Davíð er sagður hafa látið birta greinina þvert á ákvörðun framkvæmdastjórnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÍF.

Grein Davíðs bar titilinn „Pólitísk slagsíða í kennslustofunni“ og birtist í Fréttablaðinu og á Vísi þann 19. júlí síðastliðinn. Í greininni beindi Davíð spjótum sínum að kynjafræði sem skyldufagi í framhaldsskólum og líkti henni við „marxíska hugmyndafræði“. Greinin vakti mikla athygli og umtal og lýstu fyrrverandi formenn SÍF yfir óánægju með birtingu hennar. Þá var ljóst að með greininni talaði Davíð gegn opinberri stefnu SÍF.

Í tilkynningu SÍF segir að brottrekstur Davíðs byggi á því að hann hafi ítrekað virt kröfur um samþykki stjórnar fyrir greinarbirtingu að vettugi. Þá sé það einnig brottrekstrarsök að beita sér gegn stefnu sambandsins með þeim hætti sem Davíð gerði.

„Ummæli  greinarinnar vinna gegn tilgangi, markmiðum og stefnu SÍF og er þar af leiðandi brot á lögum félagsins, vinnureglum stjórnar og siðareglum. Vegna þessa og vegna samskiptaörðugleika eftir birtingu greinarinnar gaf meirihluti stjórnar Davíð Snæ kost á að segja af sér,“ segir í tilkynningu SÍF.

Það hafi Davíð hins vegar ekki gert og því hafi sambandið ákveðið að vísa Davíð úr framkvæmdastjórn.

„Í stað þess að sjá sóma sinn í að segja af sér boðaði Davíð Snær til fundar tæpri viku seinna. En meirihluti framkvæmdastjórnar fordæmir þau brot á lögum og reglum SÍF og kærir sig ekki um að starfa lengur undir hans formennsku. Því hefur Davíð Snæ verið vísað úr framkvæmdastjórn á grundvelli 32. greinar laga SÍF.“

Varaformaður SÍF, Einar Hrafn Árnason, mun taka við störfum formanns fram að aðalþingi sambandsins sem haldið verður dagana 8. og 9. september næstkomandi.






Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×