Fótbolti

Viðar Örn með bæði mörkin í sigri Maccabi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Viðar getur ekki hætt að skora.
Viðar getur ekki hætt að skora. vísir/getty
Viðar Örn Kjartansson gerði sér lítið fyrir og skoraði bæði mörk Maccabi Tel Aviv í undankeppni Evrópudeildarinnar fyrr í kvöld.

Maccabi vann 2-0 sigur á Radnicki Nis í fyrri leik liðanna í annari umferð forkeppni Evrópudeildarinnar en leikið var í Ísrael.

Markalaust var í hálfeik en á sjöttu mínútu síðari hálfleiks kom Viðar Örn heimamönnum yfir og þar af leiðandi í góða stöðu.

Selfyssingurinn var aftur á ferðinni á 69. mínútu er hann kom þeim í 2-0 og er Maccabi því með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn.

Síðari leikurinn fer fram í Serbíu í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×