Innlent

Lögreglan varar við hótunarbréfum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram að í póstunum sé sagt að móttakandi tölvupóstsins hafi verið á klámsíðum og að sendandi póstsins hafi sýkt tölvuna með vírus.
Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram að í póstunum sé sagt að móttakandi tölvupóstsins hafi verið á klámsíðum og að sendandi póstsins hafi sýkt tölvuna með vírus.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarið fengið fjölda tilkynninga um svikapósta sem sendir hafa verið til fólks í gegnum tölvupóstum.

Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram að í póstunum sé sagt að móttakandi tölvupóstsins hafi verið á klámsíðum og að sendandi póstsins hafi sýkt tölvuna með vírus.

Þannig hafi vefmyndavél tölvunnar verið gerð virk og myndband tekið af viðkomandi. Greiða þurfi upphæð til að forðast að myndskeiðið verði sent á alla á tengiliðaskrá móttakandans.

„Til að koma í veg fyrir það þurfi að greiða vissa upphæð í rafmynt (bitcoin). Þá hefur líka verið að bera á því að lykilorð móttakanda sé vitað og það jafnvel gefið upp,“ segir í færslu lögreglu.

Lögreglan bendir á að ekki er mælt með því að upphæðin sé greidd.

„Þetta eru svikapóstar sem sendir eru á tölvupóstföng sem ganga kaupum og sölum á vefnum og þegar lykilorð móttakandans er einnig gefið upp þá gefur það til kynna að þau lykilorð hafi komið upp í einhverjum lekum.

Hins vegar virðast þessi skeyti vera fjölpóstar (vefveiðar). Ekkert gefur til kynna að þeir sem senda póstinn hafi einhver myndskeið eða hafi í raun gert neitt af því sem þeir hóta. Þeir hafa í sumum tilvikum komist yfir einhverja skrá með lykilorðum og nota það til að ljá hótun sinni meira vægi, en það virðist vera allt sem þeir hafa. Þetta form er kallað vefveiðar og er vel þekkt, fjölpóstur er sendur á marga og reynt að skapa hræðslu og stress til að fá brotaþola til að senda peninga,“ segir í færslu lögreglunnar sem sjá má í heild hér fyrir neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×