Tónlist

Föstudagsplaylisti Arnljóts Sigurðssonar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Arnljótur Sigurðsson, listamaður.
Arnljótur Sigurðsson, listamaður. Vísir/Clare Aimée
Arnljóti er margt til lista lagt, og að laga einn ylvolgan lagalista vafðist ekki fyrir honum.

Af mörgum er hann helst þekktur sem einn af forsprökkum reggísveitarinnar Ojba Rasta, en raftónlist hans sem Kraftgalli og undir eigin nafni hefur einnig vakið athygli.

Arnljótur er einnig meðlimur í hljómsveitinni Konsulat sem gefur út nýju plötuna Kolaport bráðlega. Útgáfutónleikar nýju plötunnar verða haldnir í Mengi 9. ágúst næstkomandi.

Hann þeytir iðulega skífum undir nafninu Krystal Carma og er þar að auki menntaður myndlistarmaður og mikill áhugamaður um orðaleiklistina og skák.

Lagalistinn fer um víðan völl en helmingur hans er íslenskur, og á honum má meðal annars finna lag með einu af óþekktari verkefnum Jóhanns Jóhannssonar, Evil Madness.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×