Innlent

Ávöxtun lífeyrissjóða ræður hvað mestu um lífskjör á efri árum

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ávöxtun lífeyrissjóða ræður hvað mest um lífskjör á efri árum og því væri ákjósanlegt að samræma reglur um þá svo fólk eigi auðveldar með að bera þá saman, segir Gylfi Magnússon  skýrsluhöfundur um ávöxtun lífeyrissjóða.
Ávöxtun lífeyrissjóða ræður hvað mest um lífskjör á efri árum og því væri ákjósanlegt að samræma reglur um þá svo fólk eigi auðveldar með að bera þá saman, segir Gylfi Magnússon skýrsluhöfundur um ávöxtun lífeyrissjóða.
Ávöxtun lífeyrissjóða ræður hvað mestu um lífskjör á efri árum og því væri ákjósanlegt að samræma reglur um þá svo fólk eigi auðveldar með að bera þá saman, segir skýrsluhöfundur um ávöxtun lífeyrissjóða.  Fjármálaeftirlitiðætlar að samræma reglur um uppgjör lífeyrissjóða ef tilefni verður til. 

Langtíma ávöxtunartölur skyldulífeyrissjóða hafa verið til umfjöllunar á 20 ára, 25 og 30 ára tímabilum. Sjóðirnir reikna hins vegar ekki allir tölurnar eins út þannig að samanburður er ekki nákvæmur. Fjármálaeftirlitið setur reglur um þetta. Í svari þaðan segir.

„Lífeyrissjóðir gera allir upp eftir sömu reglum, en það getur verið mismunandi hvort þeir meti skuldabréf sem þeir ætla að eiga þar til það er að fullu uppgreitt á kostnaðarverði eða gangvirði. Þetta hefur áhrif á stærðir við útreikning á ávöxtun og samanburð á sjóðum og því getur verið erfitt er að bera ávöxtunartölur saman.“

Þá kemur fram að: „ Telji Fjármálaeftirlitið tilefni til mun það taka til skoðunar hvort rétt sé að breyta núverandi reglum um ársreikninga lífeyrissjóða.“

Gylfi Magnússon dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og skýrsluhöfundur um ávöxtun lífeyrissjóða síðastliðinn 20 ár segir ákjósanlegt að samræma aðferðirnar svo hægt sé að bera saman tölurnar á óyggjandi hátt. Þá þurfi að draga betur fram hvaða árangri þeir hafi náð í eignastýringu, ávöxtun og hvaða áhættu þeir hafi tekið. 

Þá sé nauðsynlegt að auka gagnsæi varðandi ávöxtunartölur.

„Fyrir einstaklinga er þetta sá þáttur sem ræður hvað mestu um lífskjör á eldri árum,“ segir hann. 

Bæði Almenni lífeyrissjóðurinn og Frjálsi hafa gert athugasemd við útreikning Gylfa um ávöxtun. Um það segir Gylfi: 

„Þær tölur sem ég fékk voru um margt svipaðar og FME fékk þannig að það kom mér ekki á óvart. En ef lífeyrissjóðirnir eru sjálfir með aðrar tölur þarf að setjast yfir það með opnum huga.“ 

 


Tengdar fréttir

Neytendastofa rannsakar framsetningu hjá lífeyrissjóðum

Neytendastofa hyggst rannsaka framsetningu á markaðsefni hjá lífeyrissjóðum sem hafa auglýst að þeir hafi fengið verðlaun fyrir að vera bestir. Nokkrir lífeyrissjóðir sem hafa verið með slíkar auglýsingar eru með slaka raunávöxtun á 20 ára tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×