Íslenski boltinn

Gunnar hættur með Selfoss

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gunnar er hættur með Selfoss.
Gunnar er hættur með Selfoss. vísir/vilhelm
Gunnar Borgþórsson óskaði í kvöld eftir því að hætta sem þjálfari Selfoss. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Selfyssingum.

Gunnar segist taka þessa ákvörðun af yfirvegun með hagsmuni klúbbsins að leiðarljósi en leit er hafin að nýjum þjálfara.

Selfyssingum hefur gengið afleitlega í Inkasso-deildinni í ár en liðið er í fallsæti þegar þrettán umferðir eru búnar af deildinni.

Liðið tapaði í gær fyrir ÍR á ótrúlegan hátt og eftir leikinn sagðist Gunnar vera tilbúinn að stíga til hliðar finnist nýr maður til að taka við starfinu.

Nú er hann hættur en hann var á sínu þriðja tímabili með karlaliðið hjá félaginu. Þar áður hafði hann þjálfað kvennalið félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×