Fjölgum starfandi hjúkrunarfræðingum Guðbjörg Pálsdóttir skrifar 11. júlí 2018 07:00 Skortur á hjúkrunarfræðingum til starfa er reglulegt umfjöllunarefni fjölmiðla auk þess sem ýmsir aðilar hafa gert það að umræðuefni sínu. Allir sem að umræðunni koma eru sammála um að draga þurfi úr þessum skorti með aukinni nýliðun og leiðum til að halda hjúkrunarfræðingum í starfi. Of margir hjúkrunarfræðingar hafa hætt í starfi og eru eftirsóttir í betur launuð störf sem bjóða upp á betri vinnutíma og starfsumhverfi. Staðreyndir í skýrslum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) um vinnumarkað hjúkrunarfræðinga (febrúar 2017), skýrslu Ríkisendurskoðunar um hjúkrunarfræðinga, mönnun, menntun og starfsumhverfi (október 2017) og nú síðast niðurstöður stórrar könnunar sem félagið gerði meðal hjúkrunarfræðinga um viðhorf, ánægju og ýmsa þætti er snerta starfið (júní 2018), staðfesta þessi atriði. Staðreyndirnar eru komnar fram, nóg hefur verið rætt. Tími lausna og framkvæmda er runninn upp. Áðurnefnd könnun Fíh gefur skýra mynd af því sem þarf að bæta til að fá hjúkrunarfræðinga aftur í hjúkrun. Niðurstöðurnar er erfitt að hrekja þar sem rúmlega 74% starfandi hjúkrunarfræðinga svöruðu könnuninni. Um 70% hjúkrunarfræðinga eru óánægð með launakjör, tæplega helmingur þeirra taldi atvinnuhúsnæðið vera óviðunandi og 64% töldu álagið vera mjög eða of mikið í starfi svo eitthvað sé nefnt. Hjúkrunarfræðingar vilja betra starfsumhverfi, aðbúnað og launakjör og að ábyrgð og menntun í starfi sé metin að verðleikum. Það er ljóst að umbætur á þessum þáttum þurfa að vera í forgangi svo hægt sé að tryggja landsmönnum áfram góða heildstæða heilbrigðisþjónustu enda hjúkrunarfræðingar hryggjarstykkið í íslensku heilbrigðiskerfi. Það er ánægjulegt að ennþá er aðsókn í hjúkrunarfræðinám á Íslandi. Fleiri sækja um en komast að hjá Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands. Í ár mun einungis tæpt 41% umsækjenda fá inngöngu í hjúkrunarfræðinám. Mikið sóknartækifæri er því til staðar fyrir mennta- og heilbrigðisyfirvöld, í samvinnu við háskólana og heilbrigðisstofnanir, að mennta fleiri hjúkrunarfræðinga. En fjölgun hjúkrunarfræðinema krefst aukins fjármagns frá yfirvöldum, það er ljóst. Til þess að fjölga nemendum í hjúkrun þarf að hugsa í nýjum lausnum. Í dag er mögulegt að nota meira hátækni hermikennslu í klínísku námi sem undirbýr nemendur vel fyrir framtíðarstarfið. Betri nýting klínískra námsplássa á heilbrigðisstofnunum út frá 12 mánuðum ársins má skoða auk þess að fjölga þeim stöðum sem sinna verklegri kennslu. Í dag eru aldraðir með flókin og fjölþætt heilbrigðisvandamál einn stærsti skjólstæðingahópur hjúkrunarfræðinga. Aldraðir þurfa t.d. í vaxandi mæli þjónustu hjúkrunarfræðinga á eigin heimili og því mætti auka þann hluta verknáms hjúkrunarfræðinga.Ekkert bólar á framkvæmdinni Ljósmæður eiga nú í kjarabaráttu við hið opinbera sem gengur illa að leysa. Fíh styður fyllilega ljósmæður í sinni kjarabaráttu. Ljósmæður eru hrein kvennastétt en 98% hjúkrunarfræðinga eru konur. Á undanförnum misserum hefur ráðherrum og alþingismönnum verið tíðrætt um jöfnun kynbundins launamunar á Íslandi. Ekkert bólar hins vegar á framkvæmdinni. Ég velti fyrir mér hvort nálgun ríkisins í samningaferlinu við kvennastéttina ljósmæður gefi tóninn fyrir það sem hjúkrunarfræðingar eiga von á í komandi kjaraviðræðum. Er það svona sem ríkisvaldið ætlar að ganga fram við að jafna kynbundinn launamun? Við hverju mega hjúkrunarfræðingar búast á árinu 2019 þegar gerðardómi lýkur í mars og hjúkrunarfræðingar fagna 100 ára afmæli félagsins? Hjúkrunarfræðingar hafa lýst alvarleika ástandsins í heilbrigðiskerfinu sem ógnvænlegu og að þeir séu að missa stjórn á aðstæðum. Heilbrigðiskerfið virðist ekki ráða við þau verkefni sem það þarf að sinna og í slíkum aðstæðum getur öryggi sjúklinga verið ógnað. Oft er skelfingarástandi á Landspítala lýst í fjölmiðlum og dregið er úr margvíslegri þjónustu vegna skorts á hjúkrunarfræðingum. Í samtali mínu við hjúkrunarfræðinga heyri ég að þeir eru langþreyttir og úrvinda eftir mikið og síaukið vinnuálag undanfarinna ára. Það eru ekki bara yngri hjúkrunarfræðingar sem velja sér annan starfsvettvang heldur líka þeir eldri. Hjúkrunarfræðingar upplifa aðgerðarleysi stjórnvalda sem algjört virðingarleysi við sig og sína skjólstæðinga. Þessi mannauður er ómetanlegur og hefur heilbrigðiskerfið ekki efni á að tapa honum frekar en nú er. Í umræðunni undanfarið hefur verið talað um að skortur á hjúkrunarfræðingum sé alþjóðlegt vandamál. Það er vissulega rétt en bætir ekkert þá alvarlegu stöðu sem uppi er í íslensku heilbrigðiskerfi. Íslensk stjórnvöld hafa einstakt tækifæri til þess að gera betur en önnur lönd ef vilji er raunverulega fyrir hendi. Ég skora á íslensk stjórnvöld, sem þegar hafa viðurkennt vandann, að gera eitthvað í málinu nú þegar.Höfundur er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Guðbjörg Pálsdóttir Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr. Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Skoðun Auðkenni þarf að passa upp á Eva Valdís Jóhönnudóttir skrifar Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar