Lífið

Weird Al Yankovic á Íslandi

Andri Eysteinsson skrifar
Fjöllistamaðurinn Al Yankovic virðist kunna vel við höfuðborgina.
Fjöllistamaðurinn Al Yankovic virðist kunna vel við höfuðborgina. Twitter/ Al Yankovic
Fjöllistamaðurinn Weird Al Yankovic er þessa dagana staddur á Íslandi en hann greindi frá því með mynd á Twitter síðu sinni. Færsluna og myndina má sjá neðst í fréttinni.

Yankovic deildi mynd af sér standandi við skilti á mótum Bergstaðastrætis og Skólavörðustígs með Hegningarhúsið í bakgrunn. Í færslunni sagðist Yankovic ætla að formlega að breyta nafni sínu í „Weird Al“ Reykjavík.

Yankovic sem er þekktastur fyrir ábreiður sínar þar sem hann skopstælir þekkt lög annarra listamanna auk þess sem hann hefur leikið í fjölda þátta og kvikmynda.

Tónlistin hefur þó verið hans aðalsmerki og hefur hann til að mynda hlotið fern Grammy verðlaun á ferlinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×