Fótbolti

Gunnleifur framlengir við Breiðablik

Dagur Lárusson skrifar
Gunnleifur Gunnleifsson.
Gunnleifur Gunnleifsson. vísir/Anton
Gunnleifur Gunnleifsson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Breiðablik og það á sjálfan afmælisdaginn sinn.

 

Gunnleifur gekk til liðs við Breiðablik árið 2013 frá FH eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Hafnarfjarðarliðinu.

 

Gunnleifur varð 43. ára í dag og mun því spila með Breiðablik þar til hann verður a.m.k. 44. ára en hann er, eins og flestir vita, fyrirliði liðsins og algjör lykilmaður.

 

Hér fyrir neðan má sjá mynd frá undirskriftinni.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×