Lífið

Hertogaynjurnar fylgdust með Wimbledon

Sylvía Hall skrifar
Vinkona Markle til margra ára, Serena Williams, lék til úrslita í dag.
Vinkona Markle til margra ára, Serena Williams, lék til úrslita í dag. Vísir/Getty
Svilkonurnar Kate Middleton, hertogaynja af Cambridge og Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, fylgdust saman með úrslitaleik kvenna á Wimbledon-mótinu í dag.

Fyrir leik heilsuðu hertogaynjurnar upp á boltasækjara mótsins, yngri keppendur mótsins sem og keppendur í hjólastólum.

  



Hertogaynjurnar virtust skemmta sér vel á úrslitaleiknum. Serena Williams, vinkona Markle til margra ára, lék til úrslita en það var andstæðingur Williams, Angelique Kerber, sem bar sigur úr býtum.

Þetta er fyrsta opinbera heimsókn þeirra tveggja saman eftir að Markle gekk að eiga Harry Bretaprins þann 19. maí síðastliðinn.

Middleton og Markle virtust skemmta sér vel yfir leiknum.Vísir/Getty
Svilkonurnar eru góðar vinkonur ef marka má myndir.Vísir/Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×