Körfubolti

Finnar henta okkur ágætlega

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Vísir/Bára
„Við hlökkum bara til. Þetta er mjög skemmtileg höll og það verður uppselt á leikinn,“ sagði Hlynur Bæringsson, fyrirliði körfuboltalandsliðsins, í samtali við Fréttablaðið í gær.

Hlynur og félagar mæta Finnum í lokaleik sínum í F-riðli undankeppni HM 2019 og verða að vinna til að komast í milliriðla. Ísland tapaði á grátlegan hátt fyrir Búlgaríu á föstudaginn, 88-86.

„Við höfum farið yfir þann leik eins vel og við höfum getað. En einbeitingin er aðallega á leiknum gegn Finnum,“ segir Hlynur sem var stigahæstur íslensku leikmannanna gegn Tékkum með 16 stig. Hann segir að tapið fyrir Búlgörum svíði.

„Þetta var mjög stórt. Þetta var þungur hnífur,“ segir Hlynur en íslenska liðið fékk tækifæri til að jafna eða vinna leikinn gegn Búlgaríu í lokasókninni.

Leikurinn í dag er þriðji leikur Íslands og Finnlands á innan við ári. Þau mættust í Helsinki í lokaumferð riðlakeppninnar á EM í september þar sem Finnar höfðu betur, 83-79, eftir góðan endasprett. Íslendingar unnu hins vegar fyrri leik liðanna í undankeppni HM í Laugardalshöllinni, 81-76. Íslenska liðið tryggði sér sigurinn með því að vinna 4. leikhlutann 26-13.

Hlynur segir að öfugt við mörg lið hafi Finnar ekki mikla líkamlega yfirburði yfir Íslendinga. „Við getum spilað aðeins öðruvísi á móti þeim. Þeir eru ekki með marga stóra og sterka leikmenn sem eru góðir með bakið í körfuna. Þeir eru með góða og stóra skotmenn. Mér finnst þeir henta okkur ágætlega. Líkamlegir yfirburðir eru ekki eins rosalegir og við lendum stundum í,“ segir hann.

„Það er margt svipað með þessum liðum. Þessi kjarni í finnska liðinu og þjálfarinn eru búnir að vera lengi saman. Það er eining í þessu liði sem mörg landslið vantar kannski. Þeir græða á því,“ bætir Hlynur við.

Finnar voru án sinnar skærustu stjörnu, Lauri Markkanen, í fyrri leiknum gegn Íslandi í undankeppninni. Chicago Bulls-maðurinn er kominn aftur í finnska liðið og lék með því í tapinu fyrir Tékkum, 77-73, á föstudaginn. Það þýðir að Finnar verða að vinna Íslendinga í dag til að komast í milliriðla.

„Við höfum séð brot úr leiknum þeirra gegn Tékkum og þá fannst mér þeir ekkert sérstaklega skarpir. Það eru veikleikar hjá þeim sem við getum nýtt okkur, og öfugt,“ segir Hlynur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×