Íslenski boltinn

Sjáðu glæsilegt hornspyrnumark Jónasar

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Þór lagði Þrótt á heimavelli sínum á Akureyri í fyrsta leik 10. umferðar Inkasso deildar karla í kvöld. Jónas Björgvin Sigurbergsson skoraði glæsimark fyrir Þór beint úr hornspyrnu.

Staðan var 1-1 í hálfleik eftir mörk frá Viktor Jónssyni og Alvaro Montejo.

Þórsarar fengu hornspyrnu snemma í seinni hálfleik sem Jónas Björgvin tók og hann gerði sér lítið fyrir og skilaði boltanum í marknetið, beint úr hornspyrnunni.

Það má setja spurningamerki við markvörð Þróttar, Arnar Darra Pétursson, í markinu, en ekki verður tekið af Jónasi að mark hans er stórglæsilegt og var spyrnan góð.

Þór vann leikinn 3-1 og komst með sigrinum upp að hlið ÍA í annað sæti deildarinnar.

Þetta glæsimark má sjá í sjónvarpsglugganum með fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×