Innlent

Sérstök karla- og kvennaklósett munu brátt heyra sögunni til hjá Reykjavíkurborg

Atli Ísleifsson skrifar
Nýtt mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar..
Nýtt mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar.. Mynd/Reykjavíkurborg
Nýtt mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar samþykkti einróma á sínum fyrsta fundi, að öll salerni fyrir starfsfólk í stjórnsýsluhúsum Reykjavíkurborgar verði gerð ókyngreind frá og með haustinu.

Í tilkynningu frá borginni kemur fram að gerð verði úttekt á klefa- og salernisaðstæðum í húsnæði þar sem Reykjavíkurborg veitir þjónustu með tillögum að úrbótum sem taki mið af ólíkum þörfum borgarbúa í samráði við þau hagsmunasamtök er málið varðar.

„Með því að hafa salerni öllum opin og sér klefa þar sem það á við er komið til móts við þarfir margra hópa eins og trans og intersex fólks og barna, foreldra fatlaðra barna í fylgd foreldris af gagnstæðu kyni og einnig myndu sér klefar nýtast fólki með heilsufarsvanda eins og t.d. stóma.

Markmið samþykktarinnar er að draga úr fordómum og skapa betra aðgengi allra að samfélaginu í sinni víðustu mynd,“ segir í fréttinni.

Að neðan má sjá sérstaka bókun mannréttinda- og lýðræðisráðs:

Að um leið og ráðið ítrekar mikilvægi tillögunnar er skorað á þær einingar sem koma að uppbyggingu og viðhaldi eigna borgarinnar auk viðeigandi fagráða, að við uppbyggingu nýrra mannvirkja borgarinnar sem og við breytingar og aðrar framkvæmdir sé þess gætt að salernis-, sturtu- og búningsaðstaða sé eins ókynbundin og frekast er unnt. Þannig telja fulltrúarnir að vinna megi gegn mismunun og tryggja að fleiri geti nýtt sér þjónustu borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×